Landsmót hestamanna 2026 á Hólum reyndist Sögusetri íslenska hestsins afar vel. Með stuðningi frá Samtökum sveitarfélaga á Norðurlandi vestra (SSNV) tók setrið þátt í mótinu með öflugum kynningarbás, fjölbreyttu fræðsluefni, viðburðum og gagnvirkri miðlun sem vakti mikla athygli meðal gesta.
Í markaðstjaldi Landsmóts var Sögusetrið með 20 fermetra kynningarbás þar sem gestir gátu kynnt sér starfsemi setursins, nýjar sýningar og heimsótt gagnvirkan spurningaleik um sögu, ræktun, sérkenni og menningararf íslenska hestsins. Leikurinn var í boði á íslensku og ensku og höfðaði jafnt til barna sem fullorðinna. Hann reyndist einstaklega vinsæll en alls tóku 315 þátt. Áætlað er að alls hafi um 3.000 gestir heimsótt kynningarbás Sögusetursins á mótinu.
Í tengslum við Landsmótið var jafnframt þróað nýtt fræðslu- og sýningarefni sem nú hefur bæst við sýningar Sögusetursins; The First Mentions of the Icelandic Horse, sem fjallar um elstu heimildir um íslenska hestinn erlendis og útbreiðslu hans, auk nýs efnis um uppruna íslenska hestakynsins. Saga Landsmóta fékk einnig aukið vægi með myndskeiðum og eldri landsmótaskrám sem gestir gátu skoðað. Loks gátu gestir notið hljóðleiðsagnar um sýningar setursins en menningarsjóður KS styrkti gerð efnisins.
Á meðan á mótinu stóð bauð Sögusetrið upp á fjölbreytta dagskrá. Þar á meðal var tónlistaratriði með Sæþóri Má og fyrirlestur Herdísar Reynisdóttur um sögu ræktunar íslenska hestsins. Þá vann Sögusetrið einnig með IPZV að fyrirlestri dr. Þorvaldar Árnasonar um kynbótamat íslenska hestsins og tók þátt í kynningu á samsýningu þriggja listakvenna í Nýjabæ í samstarfi við Þjóðminjasafn Íslands. Þá var opnunartími Sögusetursins lengdur á meðan Landsmótið stóð yfir.
Landsmótið markaði einnig tímamót fyrir starfsemi Sögusetursins þegar tilkynnt var að Sögusetrið verði hluti af nýju Rannsóknarsetri um íslenska hestinn á Hólum.
Sögusetrið vill færa öllum þeim sem lögðu verkefninu lið kærar þakkir; samstarfsaðilum, fyrirlesurum, tónlistarfólki, gestum og sjálfboðaliðum.

