26.06.2026
Í Morgunblaðinu í dag birtist viðtal við Kristínu Halldórsdóttur, verkefnastjóra Söguseturs íslenska hestsins, þar sem fjallað er um starfsemi safnsins og áherslur þess.
Í viðtalinu er meðal annars rætt um mikilvægi þess að varðveita og miðla sögu, erfðum og menningararfi íslenska hestsins á lifandi og aðgengilegan hátt.
Fram undan er Landsmót hestamanna á Hólum sem gefur Sögusetrinu einstakt tækifæri til að kynna starfsemi sína fyrir gestum víðs vegar að úr heiminum.
Við þökkum Morgunblaðinu kærlega fyrir góða umfjöllun og hvetjum öll til að næla sér í eintak!

