Sunnudagar á safni: Sögusetur íslenska hestsins

Verkefnið Sunnudagar á safni, sem er hluti af samstarfi safna hjá SSNV, heldur áfram sunnudaginn 26. apríl, en þá færist dagskráin í Skagafjörð. Markmið verkefnisins er að efla samstarf safna, setra og sýninga á Norðurlandi vestra og bjóða íbúum og gestum upp á sérstaka menningarupplifun yfir vetrartímann, þegar margir þessara staða eru annars lokaðir.

Opið verður hjá Sögusetri íslenska hestsins á Hólum kl. 13–18 og í tilefni dagsins verður aðgangseyrir aðeins 1000kr!
Klukkan 16 heldur Kristín Halldórsdóttir, verkefnastjóri setursins, erindi um litarerfðir íslenska hestsins, þar sem gestir geta komið og spjallað og kafað aðeins dýpra í efnið.
 
Þetta verður upplifun og fræðsla fyrir öll sem hafa áhuga á sögu, menningu og hestinum okkar. Við hvetjum fólk til að nýta sér þetta frábæra tækifæri!

Svæði

  •  

SÖGUSETUR ÍSLENSKA HESTSINS SES
Hólar í Hjaltadal  |  551 Sauðárkrókur  |  sogusetur@sogusetur.is  |  Kt. 411014-1420