Sögusetur íslenska hestsins opið í sumar

Sögusetur íslenska hestsins hefur nú opnað dyr sínar fyrir sumarið - verið velkomin í heimsókn!

Setrið verður opið alla daga, nema mánudaga, kl. 11-17.

Aðgangseyrir árið 2026 helst óbreyttur frá því í fyrra:

  • 1.500 kr. fullorðnir
  • 1.300 kr. hópar, nemendur og eldri borgarar (67+)
  • 0 kr. börn (0-17 ára)

Opnunargjald utan auglýsts opnunartíma setursins er 10.000 kr.

Á grunnsýningunni Íslenski hesturinn, sem er byggð upp með leikmyndum, kvikmyndum, myndskeiðum og munum er stigið aftur í tímann og mikilvægi hestsins skoðað í sögulegu samhengi. Þar má einnig berja Theodorsstofu augum þar sem minningu Theódórs Arnbjörnssonar fyrrum hrossaræktarráðunauts er haldið á lofti.

Á efri hæð setursins er sýningin Hesturinn okkar: Litbrigði, ættir og saga, tímabundin sýning sem opnaði árið 2025. Þar má m.a. virða fyrir sér fróðleik um litaerfðir íslenska hestsins, ýmsa gripi tengdum merkum hestum og mönnum.


Svæði

  •  

SÖGUSETUR ÍSLENSKA HESTSINS SES
Hólar í Hjaltadal  |  551 Sauðárkrókur  |  sogusetur@sogusetur.is  |  Kt. 411014-1420