Opnunarhátíđ SÍH

Kristín, Bjarni, Olil og Brynja.
Kristín, Bjarni, Olil og Brynja.
Sögusetur íslenska hestsins opnađi međ pompi og prakti sunnudaginn 1. júní međ opnunarhátíđ nýrrar sýningar „Hesturinn okkar: Litbrigđi, ćttir og saga“ á efri hćđ setursins. Ţar má m.a. virđa fyrir sér fróđleik um litaerfđir íslenska hestsins, ýmsa gripi tengdum merkum hestum og mönnum og skella sér í "reiđtúr" međ sýndarveruleikagleraugum frá Horses of Iceland.
 
Kristín Halldórsdóttir, verkefnastjóri setursins og hönnuđur hinnar nýju sýningar flutti rćđu í tilefni opnunarinnar. Ţá tóku fleiri til máls, m.a. Hólmfríđur Sveinsdóttir rektor Háskólans á Hólum ţar sem hún kom inn á mikilvćgi setursins fyrir Hólastađ.
 
Ţá voru setrinu fćrđar margar gjafir. Olil Amble fćrđi setrinu ađ gjöf málverk af Álfadísi frá Selfossi, eftir Jósefínu Morell, ásamt ljóđi um sögu Álfadísar eftir Fanneyju Hrund Hilmarsdóttur. Ţá lánađi Olil og fjölskylda setrinu listaverk eftir Lenu Zachariassen á Hjalteyri unniđ m.a. úr taglhárum úr Álfadísi. Magnús Einarsson í Kjarnholtum gaf setrinu myndir af Kolfinni frá Kjarnholtum og Glókollu frá Kjarnholtum. Bjarni Ţorkelsson fćrđi setrinu ađ gjöf bókina "Ćviskeiđ: Starfssaga Ţorkels Bjarnasonar hrossarćktarráđunautar". Karl Bjarnason sútari á Sauđárkróki lánađi og gaf fjölda skinna og hrosshúđa til setursins. Ţá lánađi, Erling Sigurđsson, sonur Sigurđar Ólafssonar söngvara, setrinu gripi úr eigu föđur síns sem átti m.a. Glettu frá Ţorgautsstöđum og setti á henni Íslandsmet í 250m skeiđi, en metiđ stóđ í 28 ár. 
 
Móttökurnar voru framar vonum og ţökkum viđ öllum gestum opnunarinnar kćrlega fyrir komuna! Ţá viljum viđ koma sérstökum ţökkum á framfćri til allra sem lögđu hönd á plóg viđ uppsetningu sýningarinnar, lánuđu setrinu gripi til sýningargerđarinnar eđa fćrđu setrinu gjafir. Framlag ykkar skiptir sköpum.
 
Setriđ er nú opiđ alla daga kl. 10-16 nema mánudaga (ţegar er lokađ) til og međ 30. ágúst.
 
Hlökkum til ađ sjá ykkur!
 
Hćgt er ađ sjá fleiri myndir frá opnuninni hér.

Svćđi

SÖGUSETUR ÍSLENSKA HESTSINS SES
Hólar í Hjaltadal  |  551 Sauđárkrókur  |  sogusetur@sogusetur.is  |  Kt. 411014-1420