Nýr kafli í starfsemi Söguseturs íslenska hestsins
Setrið vel sótt í ár
Við þökkum öllum þeim fjölmörgu gestum sem heimsóttu Sögusetrið á Hólum í Hjaltadal á árinu, sem og samstarfsaðilum og velunnurum fyrir áhuga þeirra og stuðning.
Starfsemi Sögusetursins var fjölbreytt á árinu 2026 og einkenndist meðal annars af öflugu fræðslu- og kynningarstarfi, viðburðahaldi og þátttöku í Landsmóti hestamanna á Hólum. Alls heimsóttu tæplega þúsund gestir Sögusetrið á árinu. Gestirnir komu víða að úr heiminum og voru um þrír af hverjum fjórum erlendir.
Þátttaka Sögusetursins í Landsmóti hestamanna var eitt stærsta verkefni ársins. Þar gafst tækifæri til að kynna íslenska hestinn, sögu hans og menningarlegt mikilvægi fyrir fjölbreyttum hópi gesta, meðal annars með nýju fræðslu- og kynningarefni og gagnvirkri miðlun. Jafnframt var unnið að þróun sýningarefnis, skráningu safnmuna og fjölbreyttri fræðslu fyrir gesti setursins.
Sérstakar þakkir fær Kristín Halldórsdóttir, verkefnisstjóri Sögusetursins, fyrir vel unnin störf, mikinn metnað og ómetanlegt framlag til starfseminnar. Einnig eru samstarfsaðilum, styrktaraðilum og öllum þeim sem lagt hafa setrinu lið færðar bestu þakkir.
Breytt fyrirkomulag og ný tækifæri
Nú standa fyrir dyrum breytingar á starfsemi Söguseturs íslenska hestsins. Í tengslum við uppbyggingu Rannsóknaseturs íslenska hestsins á Hólum mun starfsemi Sögusetursins færast undir hatt hins nýja rannsóknaseturs. Samhliða þessum breytingum verður sýningum Sögusetursins á Hólum lokað í þeirri mynd sem þær hafa verið starfræktar hingað til.
Þótt sýningarhald í núverandi mynd ljúki er áfram gert ráð fyrir að sú þekking, fræðsla og miðlun sem Sögusetrið hefur byggt upp verði hluti af starfsemi rannsóknasetursins. Breytingarnar falla vel að þeirri stefnu sem mótuð var fyrir Sögusetrið árið 2023, þar sem lögð var áhersla á samstarf, miðlun þekkingar um íslenska hestinn og tengingu við rannsóknir og fræðastarf.
Á nýju ári verður ráðinn verkefnastjóri að Rannsóknasetri íslenska hestsins, sem mun meðal annars vinna að nánari útfærslu starfseminnar, þar á meðal framtíðarfyrirkomulagi sýninga og miðlunar um íslenska hestsins.
Með þessum breytingum lýkur 25 ára kafla í sögu Söguseturs íslenska hestsins og annar tekur við. Um leið skapast ný tækifæri til að þróa starfsemina áfram í tengslum við rannsóknir, fræðslu og miðlun á Hólum. Sú mikilvæga vinna sem unnin hefur verið við að varðveita og miðla sögu og þekkingu um íslenska hestinn mun áfram nýtast komandi kynslóðum og verða hluti af öflugu fræða- og miðlunarstarfi á Hólum.
Sögusetur íslenska hestsins og Háskóli Íslands á Hólum

