10.08.2026
Hvað gerist þegar íslenski hesturinn, dramatískar og óvenjulegar sögur úr fortíðinni og hamfarahyggja Borgfirðinga mætast á Hólum í Hjaltadal?
Hlaðvarpið Myrka Ísland hefur undanfarin ár einbeitt sér að því að draga fram það skuggalegasta, sérkennilegasta og stundum óhugnanlegasta úr íslenskri sögu. Anna Dröfn og Sigrún hafa nú framleitt hundrað þætti þar sem þær kafa ofan í margvíslega atburði, örlög og sögur úr fortíðinni.
Föstudaginn 14. ágúst kl. 20.00 bregða þær stöllur sér norður yfir heiðar og taka upp sérstakan þátt Myrka Íslands fyrir framan áhorfendur í Sögusetri íslenska hestsins á Hólum.
Og þar sem upptakan fer fram á Sögusetri íslenska hestsins verður hesturinn auðvitað ekki skilinn eftir úti í haga.
Stjórnendur hyggjast freista þess að flétta saman íslenska hestinn og sögur hans, sagnfræði, hamfarir, Borgarfjörð, Norðurland, almenna eymd og mögulegar hetjudáðir manna og dýra.
Hvernig tekst að koma þessu öllu fyrir í einum þætti?
Það kemur í ljós á Hólum.
- Sögusetur íslenska hestsins, Hólar í Hjaltadal
- Föstudagur 14. ágúst
- Kl. 20.00
- Frítt inn - frjáls framlög vel þegin
Verið hjartanlega velkomin á óvenjulegt kvöld þar sem saga íslenska hestsins fær örlítið dekkri blæ.

