06.06.2026
Í tilefni af sumaropnun setursins bjóðum við ykkur velkomin á áhugaverðan fræðslufyrirlestur með Dr. Monika Reissmann frá Humboldt-háskólanum í Berlín um litaerfðir hrossa.
Dr. Reissmann er meðal fremstu sérfræðinga Evrópu á sviði hrossaerfðafræði. Hún starfaði um árabil við Humboldt-Universität zu Berlin þar sem hún veitti lífefna- og sameindalíffræðideild háskálans forstöðu. Hún lét af störfum sem forstöðumaður í lok síðasta árs, en heldur áfram að sinna ýmsum verkefnum tengdum rannsóknum og fræðslu við háskólann.
Rannsóknir hennar hafa meðal annars beinst að uppruna hrossa, erfðafræðilegri fjölbreytni mismunandi hrossakynja, litaerfðum og erfðafræðilegum þáttum sem hafa áhrif á eiginleika og ræktunarmarkmið hrossa. Hún hefur tekið þátt í fjölmörgum innlendum og alþjóðlegum rannsóknaverkefnum og birt fjölda vísindagreina á sviði hrossaerfðafræði.
Dr. Reissmann nýtur mikillar virðingar innan alþjóðlegs samfélags þeirra sem starfa við hrossarækt og rannsóknir. Í fyrirlestrum sínum tengir hún saman nýjustu vísindalegu þekkingu og hagnýta reynslu og miðlar flóknum erfðafræðilegum viðfangsefnum á skýran og aðgengilegan hátt.
Rannsóknir hennar hafa meðal annars beinst að uppruna hrossa, erfðafræðilegri fjölbreytni hrossakynja og þeim erfðaþáttum sem hafa áhrif á lit og aðra eiginleika hrossa.
Í fyrirlestrinum mun hún fjalla um nýjustu þekkingu á litaerfðum hrossa og útskýra þetta áhugaverða og flókna viðfangsefni á skýran og aðgengilegan hátt.
Fyrirlesturinn sem fer fram á ensku hentar jafnt hestafólki sem áhugasömum gestum án sérþekkingar á erfðafræði. Spurningar og umræður eru velkomnar á íslensku, ensku og þýsku.
- Aðgangseyrir: 1.500 kr.
Innifelur aðgang að Sögusetri íslenska hestsins og fyrirlestrinum. Gestir sem hafa heimsótt setrið á árinu fá frían aðgang að fyrirlestrinum.

