09.06.2026
Það var okkur mikill heiður að fá Dr. Moniku Reissmann í heimsókn í Sögusetur íslenska hestsins. Gestir fengu innsýn í heim hrossaerfðafræðinnar, litaerfða og nýjustu rannsókna á þessu spennandi sviði.
Monika fjallaði meðal annars um erfðafræðilegan grunn mismunandi lita hjá hrossum, erfðagalla sem geta tengst ákveðnum litagenum og hvernig erfðarannsóknir nýtast í nútíma hrossarækt.
Við þökkum Moniku innilega fyrir komuna og öllum þeim sem mættu og gerðu síðdegið að ánægjulegri og fræðandi samverustund. Slíkir viðburðir eru mikilvægur þáttur í því að efla Sögusetrið sem vettvang fræðslu, þekkingar og umræðu um íslenska hestinn, fortíð hans, nútíð og framtíð.

