Flýtilyklar
Fréttir
Sumaropnunartími
24.06.2014
Sögusetrið er opið þriðjudaga til föstudaga frá 10-12 og 13-18 og laugardaga frá 13-17 í sumar. Ef áhugi er á að heimsækja sýninguna á öðrum tímum er hægt að hringja í síma 6926822 og athuga hvort hægt sé að opna.
Lesa meira
Fjölskyldudagur á Hólum
13.12.2013
Sögusetrið er opið á sunnudaginn, 15. desember, frá 13-16. Þennan þriðja sunnudag í aðventu verður nóg um að vera fyrir alla fjölskylduna á Hólum. Jólatrjáasala verður í Hólaskógi frá 12-15 þar sem boðið verður upp á kakó og pönnukökur og klukkan 14 hefst aðventustund í Hóladómkirkju en að henni lokinni er boðið upp á kaffi og kökur í Hólaskóla. Við bjóðum upp á kaffi, piparkökur og jólaöl og vonum að sem flestir sjái sér fært að koma í heimsókn að skoða og prófa rugguhestana okkar.
Verið velkomin heim að Hólum
Lesa meira
Opið fyrsta sunnudag í aðventu
29.11.2013
Við minnum á að það er opið hjá okkur á sunnudaginn, 1. desember, frá 13-16. Við bjóðum upp á kaffi og piparkökur og börnin geta prófað rugguhestana. Það er því alveg tilvalið að kíkja með alla fjölskylduna og eiga notalega stund saman í upphafi aðventu.
Lesa meira


