Sumaropnun Sögusetursins

Sumaropnunartími Sögusetursins sumarið 2021 er hafinn og hlökkum við til þess að taka á móti gestum á sýninguna.

Opnunartímar eru sem hér segir:

Þriðjudaga - laugardaga frá kl. 10:00 - 17:00

Sunnudaga frá kl. 12:00 - 17:00

Lokað er á mánudögum

Sýningin Íslenski hesturinn er staðsett í Sögusetri íslenska hestsins. Sögusetrið er staðsett í gömlu hesthúsi sem stendur í hjarta Hólastaðar og er markmið Söguseturs íslenska hestsins  að vera alþjóðleg miðstöð þekkingar og fræðslu um íslenska hestinn og halda úti sýningarstarfi um hvaðeina sem lýtur að íslenska hestinum.

Verið velkomin.


Svæði

SÖGUSETUR ÍSLENSKA HESTSINS SES
Hólum í Hjaltadal  |  551 Sauðárkrókur  |  KT 411014-1420