Ný grein á vefnum eftir forstöðumann Sögusetursins - Íþróttakeppnir skjóta rótum

Björn Sveinsson og Hrímnir. Mynd úr safni SÍH.
Björn Sveinsson og Hrímnir. Mynd úr safni SÍH.

Í síðustu greinum höfum við dvalið nokkuð við landsmótið 1970, en þá hófst vegferð sem við skulum nú feta áfram. Árið 1970 markaði upphaf þess þróunarskeiðs innan hestamenskunnar hér á landi sem kallast hestaíþróttir, ekki í merkingunni að á hestamennskuna hafi enginn litið sem íþrótt fyrr en þá, heldur að nýjar keppnisgreinar, sem fengu samheitið hestaíþróttir, voru teknar upp og knapar, einkum af yngri kynslóðinni á þeim tíma, fóru að leggja sig eftir þeim sérstaklega. Fyrst í stað var þetta nokkuð það sem líkja mætti við „jaðaríþrótt“ sem svo jafnt og þétt sótti í sig veðrið og er í dag orðin þungamiðjan í þeim hluta hestamennskunnar sem snýst um keppni.

Á myndinni hér til hliðar má sjá þegar Hrímnir frá Hrafnagili var heiðraður á landsmótinu 2002, eigandi hans og knapi: Björn Sveinsson á Varmalæk er klæddur í félagsbúning FT alfarið í samræmi við sem segir í tölulið 13.1 í lögum félagsins: „Búningur félagsins er blár jakki með merki félagsins á brjóstvasa, hvítar buxur, hvít skyrta, rautt bindi og rauður klútur í brjóstvasa. Mynd úr safni SÍH úr Íslenski hesturinn, útg. MM og SÍH, 2004, bls. 264. Ljm. Friðþj. Þorkelss.

Sjá má greinina í heild sinni hér.


Svæði

SÖGUSETUR ÍSLENSKA HESTSINS SES
Hólum í Hjaltadal  |  551 Sauðárkrókur  |  KT 411014-1420