Vetur á Sögusetrinu

Opnun Söguseturs íslenska hestsins um Laufskálaréttir heppnaðist vel. Næstu mánuðina er engin skipulögð opnun á sýningar Sögusetursins fyrirhuguð en opnað verður fyrir hópa sem áhuga hafa á að skoða sýningarnar og þeim veitt leiðsögn. Slíka þjónustu þarf þó að panta með fyrirvara með því að hafa samband við Kristin Hugason forstöðumann setursins, gsm. 891 9879, tölvupóstur khuga@centrum.is eða sogusetur@sogusetur.is


Svæði

SÖGUSETUR ÍSLENSKA HESTSINS SES
Hólum í Hjaltadal  |  551 Sauðárkrókur  |  KT 411014-1420