Styrkir

Þann 1. apríl sl. fékk Sögusetrið úthlutað tveimur styrkjum fyrir árið 2016 úr Uppbyggingasjóði Norðurlands vestra sem starfar samkvæmt Sóknaráætlun fyrir landshlutann. Umsóknarfrestur fyrir styrki þessa rann út 15. febrúar sl., alls bárust 145 umsóknir þar sem óskað var eftir rúmum 200 milljónum króna í styrki. Úthlutunarnefndin úthlutaði stykjum til 77 aðila, alls að upphæð 69.400.000,- kr. Sögusetrið fékk í sinn skerf 2.550.000,- kr sem var þriðji hæsti styrkurinn. Sjá nánar á fb-síðu Sögusetursins.


Svæði

SÖGUSETUR ÍSLENSKA HESTSINS SES
Hólum í Hjaltadal  |  551 Sauðárkrókur  |  KT 411014-1420