Rannsóknir

Sögusetrið vinnur að rannsóknum á sögu hestsins, samfélagslegum áhrifum hans, eiginleikum og ræktun og öðru sem varðar íslenska hestinn. Sögusetrið miðar að því að vinna rannsóknir í samstarfi við nemendur og ýmsa sérfræðinga.

Rannsóknir og verkefni unnin við Sögusetur íslenska hestsins: 
Apalgangur og yndisspor – Tölt í 150 ár
Rakin er saga töltsins á Íslandi og í alþjóðlegu samhengi. Björn Kristjánsson tók saman.
Reiðtygi og reiðver
Rakin er saga og notkun reiðtyga og reiðvera. Sigríður Sigurðardóttir tók saman.

Aðrar rannsóknir: 
Frjósemi 
Fósturvísaflutningar 
Þjálfunarlífeðlisfræði
Sjúkdómar og heilsufræði
Atferlisfræði
Fóðurfræði 
Verkefni háskólanema unnin við Hólaskóla, með stuðningi frá Hólaskóla og/eða undir leiðsögn starfsmanna skólans. 


Frjósemi

Könnun á frjósemisþáttum íslenskra hrossa 
Tímabil: 1995-1997
Styrktaraðilar: Framleiðnisjóður landbúnaðarins, Hrossaræktarsamböndin.
Lýsing á verkefni: Rannsóknin var unnin sem mastersverkefni í hestafræðum við háskólann í Aberystwyth í Wales. Gagnasöfnun var unnin í samvinnu við hrossaræktarsamböndin í landinu, Bændasamtök Íslands, nokkra dýralækna og fjölda hrossaræktenda um land allt. Með rannsókninni fengust niðurstöður um ýmsa undirstöðuþætti varðandi frjósemi íslenskra hrossa s.s. fanghlutfall stóðhesta og áhrif ýmissa þátta þar á s.s. árstíma, þjálfunarstig og frjósemistig hryssna. Einnig hver sæðisgæði íslenskra stóðhesta eru. Þá fengust niðurstöður um nokkra þætti varðandi frjósemi hryssna s.s. áhrif aldurs og frjósemistigs á fanghlutfall þeirra, tíðni fóstursláts og lengd meðgöngu.
Birting niðurstaðna:

  • Mastersverkefni Víkings Gunnarssonar 1997. A Survey of Fertility of Icelandic Stallions. M.Sc. ritgerð við University of Wales, Aberystwyth (126 bls).
  • Morel, M.C.G. og Gunnarsson, V., 2000. A survey of the fertility of Icelandic stallions. Animal Reproduction Science (64), 49-64.
  • Víkingur Gunnarsson, 1997. Rannsókn á frjósemi íslenskra hrossa, fyrri grein. Eiðfaxi, 11, 10-13.
  • Víkingur Gunnarsson, 1997. Rannsókn á frjósemi íslenskra hrossa, seinni grein. Eiðfaxi, 12, 16-18.

Fósturvísaflutningar

Þróun fósturvísaflutninga í íslenskri hrossarækt 
Tímabil: 1997-2000
Styrktaraðili: Framleiðnisjóður landbúnaðarins.
Samstarfsaðilar: Verkefnið var unnið í samstarfi við rannsóknastöð í hestafrjósemi í Newmarket í Englandi (TBA, fertility unit) sem veitti starfsmönnum skólans verkþjálfun og faglega aðstoð við uppbyggingu á tækjabúnaði og aðstöðu sem nauðsynleg telst. 
Lýsing á verkefni: Verkefnið var unnið vorin 1997 og 1999. Fyrra árið voru fósturvísar fluttir með skurðaðgerð á fóstru en seinna árið í gegnum legháls. Eftir þessa tveggja ára þróunarvinnu hefur verið sýnt fram á að aðferðin er raunhæfur möguleiki til ræktunar úrvalshrossa í íslenskri hrossarækt og alls eru til á Hólum 13 lifandi hross (3 hross eru 6 vetra, 6 hross eru 4 vetra, 1 tryppi 2 vetra og 3 folöld fædd 2004) sem eru tilkomin vegna fósturvísaflutninga. 9 af þessum hrossum eru afrakstur frá fyrstu 2 árunum en hin eru síðar tilkomin.
Við þróunarvinnuna fyrstu 2 árin (1997og 1999) var alfarið unnið með hryssur skólans en síðan var þessi möguleiki boðinn öllum hrossaræktendum og var fyrst boðið uppá þessa þjónustu vorið 2001 við skólann.
Birting niðurstaðna:

  • Guðrún J. Stefánsdóttir og Vilhjálmur Svansson, 1999. Þróunarverkefni með fósturvísaflutningaí íslenskum hryssum. Freyr-hrossaræktarblað, 1.tbl. janúar 95.árg. bls. 31-32.
  • Höskuldur Jensson, 1999. Fósturvísaflutningar á milli hryssna. Þróunarverkefni við Hólaskóla –seinni hluti. Freyr-hrossaræktarblað, 13-14.tbl desember 95.árg. bls. 35-37.

Þjálfunarlífeðlisfræði

Athugun á undirstöðuatriðum varðandi þjálfunarlífeðlisfræði íslenskra hrossa 
Tímabil: 1993-1994.
Lýsing á verkefni: Athugun var gerð á hópi reiðhrossa við Hólaskóla. Upplýsingar fengust um grunnþætti þjálfunarlífeðlisfræði fyrir íslensk hross s.s. hvíldarpúls og áhrif mismunandi álags á púls. Einnig fengust fram vísbendingar um áhrif þjálfunar á þrek reiðhrossa. 
Birting niðurstaðna:

  • Mastersverkefni Magnúsar Lárussonar, 1996. Training Horses, heart rate in icelandic horses, a preliminary study. M.Sc. ritgerð við Oregon háskólann í Bandaríkjunum (39 bls).
  • Magnús Lárusson, 2000. Líkamleg þjálfun, fyrir keppnis-og ferðahesta. Eiðfaxi, 1, 28-30.
  • Magnús Lárusson, 2000. Þolþjálfun. Eiðfaxi, 2, 30-31.

Sjúkdómar og heilsufræði

Ending og förgunarástæður íslenskra hrossa 
Tímabil: 2001-2003
Styrktaraðili: Stofnverndarsjóður íslenska hestsins.
Samstarfsaðili: Landbúnaðarháskólinn í Uppsölum
Lýsing á verkefni: Rakinn er æviferill 772 hrossa, sem fædd eru árin 1980-1985 og 1990-1991. Markmiðið er að kanna endingu og algengustu förgunarástæður. Við lok rannsóknarinnar reyndust 201 hross vera dauð eða fallin úr notkun (183), flutt úr landi (223) eða óvisst var um afdrif þeirra innanlands (201). Við úrvinnslu gagnanna var notuð aðferðafræði endingargreininga (survival analysis) og reiknuð sk. endingarföll. Við um 17 vetra aldur voru 50% af öllum hestum enn á lífi og í notkun en miðgildið var um 18 vetra aldur fyrir hryssur. Notkun hrossanna á hverjum tíma, almanaksár, uppruni og kynbótamat reyndust hafa marktæk áhrif á endingarfallið. Algengustu förgunarástæður voru fækkun ræktunarhryssna (20,4%) og slæmt geðslag (16,4%) en næst á eftir komu helti (12,4%) og slysfarir (10,9%). Niðurstöður birtust í mastersritgerð höfundar (Valbergs Sigfússonar) og hafa auk þess verið kynntar meðal hrossaræktenda, á fundi fagráðs í hrossarækt haustið 2003 og í Hrossaræktarfrey 2003.
Birting niðurstaðna:

  • Mastersverkefni Valbergs Sigfússonar, 2003. Longevity in icelandic horses: length of life and reasons for culling and death. M.Sc.ritgerð við Landbúnaðarháskólann í Uppsölum í Svíþjóð (24 bls).
  • Valberg Sigfússon, 2003. Ending og förgunarástæður íslenskra hrossa. Hrossaræktarfreyr, 10, 41-45.

Spatt í íslenskum hestum. Faraldsfræði, arfgengi, klínísk einkenni og orsakir 
Tímabil: 1995-1998
Styrktaraðilar: Framleiðnisjóður landbúnaðarins, Vísindasjóður og Útflutnings-og markaðsnefnd íslenska hestsins.
Samstarfsaðilar: Samstarfsaðilar voru frá Dýralæknadeild Landbúnaðarháskóla Svíþjóðar (SLU) í Uppsölum, Tilraunastöð HÍ að Keldum og ráðgjafafyrirtækinu IHBC AB, Morgongåva Svíþjóð. 
Lýsing á verkefni: Með rannsókninni fékkst yfirlit yfir tíðni sjúkdómsins í íslenskum reiðhestum og sambandið milli röntgengreiningar og klínískra einkenna. Lagt var mat á arfgengi sjúkdómsins og áhrif byggingar, hæfileika og ýmissa umhverfisþátta á tíðni hans. Gagnavinnsla fór fram á árunum 1995-6 en úrvinnsla 1997-8. 
Kynning niðurstaðna: Niðurstöðurnar hafa verið birtar í erlendum vísindaritum og ráðstefnum. Þær hafa enn fremur verið kynntar fyrir hrossaræktendum og hestamönnum með grein í Bændablaðinu 1998, og viðtalsgreinum í Eiðfaxa og Hestinum okkar 1997. Þá hafa niðurstöðurnar verið kynntar á fræðslufundum hjá hrossaræktarsamböndum og á opnum samráðsfundi Fagráðs í hrossarækt 1997.
Birting niðurstaðna:

  • Doktorsverkefni Sigríðar Björnsdóttur, 2002. Bone Spavin in Icelandic horses. Aspects of predisposition, pathogenesis and prognosis. Ph.D. ritgerð við Landbúnaðarháskólann í Uppsölum í Svíþjóð.
  • S.Björnsdóttir, M. Axelsson, P. Eksell, H. Sigurdsson and J. Carlsten, 2000. Radiographic and clinical survey of degenerative joint disease in the distal tarsal joints in Icelandic horses. Equine Veterinary Journal, 32 (3) 268-272.
  • M.Axelsson, S.Björnsdóttir, P.Eksell, J.Häggström, H.Sigurdsson and J.Carlsten, 2001. Risk factors associated with hindlimb lameness and degenerative joint disease in the distal tarsus of Icelandic horses. Equine Veterinary Journal, 33 (1) 84-90.
  • Sigríður Björnsdóttir, Thorvaldur Árnason, Mats Axelsson, Per Eksell, Helgi Sigurðsson, Johan Carlsten, 2000. The heritability of degenerative joint disease in the distal tarsal joints in Icelandic horses. Livestock Production Science 63, 77-83.
  • Björnsdóttir, S., Arnason, Th., Axelsson, M., Eksell, P., Sigurðsson, H. and Carlsten, J. 
    The heritability of bone spavin in Icelandic horses. In Proceedings of the XVIII Nordic Veterinary Congress in Helsinki, Finland, 4th -7th August 1998.
  • Axelsson, M., Björnsdottir, S., Eksell, P., Sigurðsson, H. and Carlsten, J.
    Risk factors associated with hind limb lameness and radiographic signs of bone spavin in the 
    Icelandic horse. In: Proceedings of the XVIII Nordic Veterinary Congress in Helsinki, Finland 4th - 7th August, 1998.
  • Björnsdottir, S., Axelsson, M., Eksell, P., Sigurðsson, H. and Carlsten, J.
    A radiographic and clinical survey of bone spavin in Icelandic horses. In: Proceedings of the XVIII Nordic Veterinary Congress in Helsinki, Finland 4th-7th August 1998.
  • Sigríður Björnsdóttir, 2003. Spatt í íslenskum hrossum; áhættuþættir, sjúkdómsferill og horfur. Freyr-hrossaræktarblað 99 (10) 57-62.
  • Sigríður Björnsdóttir og Helgi Sigurðsson. Spatt í íslenskum hrossum. Bændablaðið, 17.febrúar 1998, bls. 6-7.
  • Sigríður Björnsdóttir og Helgi Sigurðsson, 1997. Spatt er alvarlegt vandamál í íslenskum hrossum. Eiðfaxi 9, 12-17.
  • Sigríður Björnsdóttir, 1997. Er spattið arfgengur sjúkdómur ? Hesturinn okkar, okt. 25-27.

Atferlisfræði

Innræting folalda 
Tímabil: 2000-
Styrktaraðili: Kennaraháskóli Íslands
Lýsing á verkefni: Árið 2000 var sett í gang verkefni í innrætingu folalda (imprint-training) við Hólaskóla. Þetta verkefni byggir á hugmyndum og aðferðum hins ameríska dýralæknis Dr. Roberts Miller. Hann heldur því fram að námsgeta nýfæddra folalda sé mun meiri en síðar á æviskeiðinu og að hana megi nýta til að flýta fyrir tamningu á þann hátt að meðhöndla folöld á fyrstu klukkustundum og dögum lífs síns. Í Hólarannsókninni voru 22 folöld meðhöndluð og 22 ekki. Um haustið var lagt mat á árangur sem var enginn, niðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að hross læri ekki með innrætingu. Þetta verkefni er þó enn í gangi, því ætlunin er að fylgja þeim folöldum sem tóku þátt í verkefninu eftir í gegnum frumtamningu og sjá hvort þar komi fram munur.

Birting niðurstaðna:

Eru hestar ættræknir ? 
Tímabil: 2003-
Styrktaraðili: Nýsköpunarsjóður, University of Guelph Canada
Lýsing á verkefni: Sumarið 2003 var sett upp rúmlega 2 mánaða atferlisfræðirannsókn þar sem leitast var við að svara spurningunni “Eru hestar ættræknir ?” Verkefnið vann kanadískur dýralæknanemi Kate Sawford, undir leiðsögn Hrefnu Sigurjónsdóttur dýraatferlisfræðings og prófessors í líffræði. Verkefnið var unnið á Hólum í Hjaltadal. Grunnhópurinn voru 15 tryppi í eigu Hólaskóla, sem síðan var bætt í 9 aðkomutryppum einu í einu með nokkurra daga millibili. Niðurstöður benda til þess að skyld hross haldi sig oftar nær hvort öðru en hafi ekki endilega meiri samskipti sín á milli að öðru leyti. Reynslan af verkefninu gaf tilefni til að rannsaka þetta frekar og fer framhaldsrannsókn fram sumarið 2004.

Atferli hrossa að vetri til 
Tímabil: 2001-2004
Styrktaraðili: Kennaraháskóli Íslands.
Lýsing á verkefni: Meginmarkmið þessarar rannsóknar var að gera forstigskönnun á skjólnotkun hrossa að vetri til, svo hægt væri að undirbyggja frekari rannsókn. En jafnframt að skoða félagshegðun og tímanotkun hrossa að vetri til. Rannsóknin var gerð á Hólum í Hjaltadal í Skagafirði. Gögnum var safnað seinni hluta vetrar 2001 með því að fylgjast með og mæla hegðun tveggja hópa með 19 og 23 hrossum og síðan var hegðun þriggja hópa með 19, 28 og 30 hrossum mæld veturinn 2002. Til að meta félagsgerðina voru öll samskipti sem sáust skráð og tímanotkun metin með s.k. skimunaraðferð (instantaneous scanning). Skjólnoktun hrossanna reyndist vera afar lítil og var eingöngu mælanleg hjá einum hóp. Hrossahópunum var gefið vel af heyi, en ekki við skjólin. Á meðan hrossin höfðu nægt hey leituðu þau ekki í skjólið. Marktæk virðingarröð var í öllum hópunum. Geldingarnir voru ofar í virðingarröðinni en hryssurnar en aldur og þyngd réðu þó mestu um stöðu einstaklinganna. Eldri hrossin voru jafnframt árásargjarnari. Hross sem voru ofarlega í virðingarröðinni héldu betur holdum en þau sem voru neðarlega. Í vondum veðrum voru hærra settir einstaklingar oftar í skjóli fyrir veðrinu en þeir sem voru lægra settir og voru þeir síðarnefndu meira á beit í einum hópnum og í öðrum voru þau minna í heyi. Mestur tími hrossanna fór í að éta og næstmestur í hvíld.
Niðurstöður benda til að ráðandi hross geti bæði tryggt sér meiri aðgang að heyi og notið skjóls frá lægra settum hrossum. Því þarf að huga að því þegar hrossahópar eru settir saman í girðingar að draga eins og unnt er úr hættu á því að yngri hross og uppburðarlítil verði undir í samkeppninni um fæðu og skjól. Reynsla af þessari rannsókn sýnir að áhugavert væri að gera rannsókn á skjólanotkun að vori og hausti, þar sem úrkoma er tíð og hrossum ekki gefið mikið.
Birting niðurstaðna:

  • Mastersverkefni Hrefnu Berglindar Ingólfsdóttur, 2004. Atferli íslenska hestsins að vetrarlagi. M.Sc. ritgerð við raunvísindadeild Háskóla Íslands, (100 bls).

Fóðurfræði

Þróun á holdastigskvarða til að meta holdafar íslenskra hrossa 
Tímabil: 1996-2001
Lýsing á verkefni: Nám við Hólaskóla hefur verið í sífelldri þróun. Kennsla á sviði hestamennsku hefur vaxið geysilega síðustu árin og miðast við sérhæfingu og fagmennsku á því sviði. Hin síðari ár eftir að til varð sérstök hrossabraut við skólann, hefur verið í þróun stigunarkvarði sem notaður er til að meta holdafar hrossa. Við Hólaskóla er komin mikil reynsla af því að nota þennan stigunarkvarða og hefur hann reynst hentugt hjálpartæki við mat á holdafari hrossa. Sambærilegir kvarðar eru til erlendis einkum fyrir stór hestakyn og því hentaði ekki að taka þá beint upp hér á landi. Þessi holdastigskvarði er einnig ætlaður til leiðbeiningar fyrir hvern þann sem fóðrar hross og sem viðmiðun við forðagæslu og gæðastýringu.
Birting niðurstaðna:

  • Guðrún Jóhanna Stefánsdóttir og Sigríður Björnsdóttir, 2001. Mat á holdafari hrossa. Eiðfaxi-ræktun. Bls. 60-65.
  • Guðrún Stefánsdóttir og Sigríður Björnsdóttir, 2001. Mat á holdafari hrossa. Hrossaræktar-Freyr, bls. 50-51.


Meltanleiki vallarfoxgrass í íslenskum hrossum 
Tímabil: 2003-
Samstarfsaðilar: Rannsóknastofnun Landbúnaðarins, Landbúnaðarháskólinn í Uppsölum
Lýsing á verkefni: Tilgangur þessa verkefnis er að meta sjáanlegan (apparent) meltanleika 4 mismunandi gæða (mismunandi sláttutími) vallarfoxgrass í íslenskum hrossum, með heildarsöfnun á skít og þvagi. Hönnunin á tilrauninni er 4 ´ 4 latneskur ferningur (latin-square), þar sem hver lota er 20 dagar, 14 daga aðlögun og 6 daga söfnunartímabil. Sýnin sem tekin eru af fóðri, skít og þvagi eru fryst og síðan efnagreind. Niðurstöðurnar gefa ákveðnar grunnupplýsingar um íslenska hestinn sem jafnframt má nota til samanburðar við önnur hestakyn. Auk þess að stuðla að nákvæmari fóðurleiðbeiningum fyrir hross hérlendis og styðja að upptöku á nýju fóðurmatskerfi fyrir hross á Íslandi. Verkefnið er í gangi og er unnið sem mastersverkefni Sveins Ragnarssonar í fóðurfræði við Landbúnaðarháskólann í Uppsölum í Svíþjóð.

Mat á viðhaldsþörfum íslenskra hrossa 
Tímabil: 2003-
Samstarfsaðilar: Rannsóknastofnun Landbúnaðarins, Landbúnaðarháskólinn í Uppsölum
Lýsing á verkefni: Tilgangur þessa verkefnis er að meta viðhaldsorkuþörf íslenskra hrossa útfrá lífvigtarbreytingum. Fylgst er með lífþunga 9 hrossa í 3-4 mánuði. Hrossunum er skipt í 3 hópa, þar sem hver hópur er fóðraður á mismunandi magni af sama fóðri, einn hópur er á yfirfóðrun, annar nálægt viðhaldsfóðrun og sá þriðji er undirfóðraður. Fóðrið er nákvæmlega vigtað í hrossin og þurrefnissýni tekin reglulega úr því. Hrossin eru vigtuð og holdstiguð vikulega og aðhvarf síðan reiknað útfrá lífvigtarbreytingum. Ætla má að niðurstöðurnar gefi góða nálgun að viðhaldsþörfum hrossa við staðlaðar aðstæður hér á landi. Verkefninu er ekki lokið.


Verkefni háskólanema unnin við Hólaskóla, með stuðningi frá Hólaskóla og/eða undir leiðsögn starfsmanna skólans:

Doktorsverkefni Sigríðar Björnsdóttur, 2002. 
Bone Spavin in Icelandic horses. Aspects of predisposition, pathogenesis and prognosis. 
Ph.D. ritgerð við Landbúnaðarháskólann í Uppsölum í Svíþjóð.

Mastersverkefni Guðrúnar J. Stefánsdóttur, 1996. 
Degradation of fibre-based foodstuffs in the caecum of ponies using the in situ technique. 
M.Sc. ritgerð við University of Wales, Aberystwyth (140 bls).

Mastersverkefni Hrefnu Berglindar Ingólfsdóttur, 2004. 
Atferli íslenska hestsins að vetrarlagi.
M.Sc. ritgerð við raunvísindadeild Háskóla Íslands, (100 bls).

Mastersverkefni Magnúsar Lárussonar, 1996. 
Training Horses, heart rate in icelandic horses, a preliminary study. 
M.Sc. ritgerð við Oregon háskólann í Bandaríkjunum (39 bls).

Mastersverkefni Valbergs Sigfússonar, 2003. 
Longevity in icelandic horses: length of life and reasons for culling and death. 
M.Sc.ritgerð við Landbúnaðarháskólann í Uppsölum í Svíþjóð (24 bls).

Mastersverkefni Víkings Gunnarssonar 1997. 
A Survey of Fertility of Icelandic Stallions. 
M.Sc. ritgerð við University of Wales, Aberystwyth (126 bls).

Mastersverkefni Sveins Ragnarssonar 2004. 
Nýting vallarfoxgrass í íslenskum hestum. 
M.Sc.ritgerð við Landbúnaðarháskólann í Uppsölum í Svíþjóð (38 bls).

Heimild: www.holar.is

 

Svæði

SÖGUSETUR ÍSLENSKA HESTSINS SES
Hólum í Hjaltadal  |  551 Sauðárkrókur  |  KT 411014-1420